226ERS – næring fyrir þá sem vilja ná lengra

Markmið 226ERS er að þróa hágæða íþróttanæringu með áherslu á vönduð og eins náttúruleg hráefni og mögulegt er. Frá upphafi hefur verið lögð sérstök áhersla á góða meltingu, að draga úr óþarfa sykri, forðast pálmaolíu og bjóða upp á fjölbreytt úrval glútenlausra og vegan vara.
Reynslan

Sagan á bak við 226ERS hófst þegar Jesús, stofnandi merkisins, keypti sína fyrstu bók um íþróttanæringu aðeins 13 ára gamall. Hann stundaði sund og síðar meðal annars fjallahjólreiðar, skíði og aðrar íþróttir.
Fljótlega varð honum ljóst hversu nátengd næring og árangur í íþróttum eru.
Ástríðan

Árið 1994 hóf Jesús að æfa þríþraut og þar varð mikilvægi næringar enn augljósara.
Í langri og krefjandi keppni árið 1999 þurfti hann að hætta keppni vegna vandamála sem tengdust næringu og meltingu. Sú reynsla varð vendipunktur og kveikti áhuga hans á að finna betri leið til að næra líkamann í langvarandi álagi.
Rannsóknir og þróun

Eftir margra ára keppni og endurtekin meltingarvandamál í lengri þrautum hóf Jesús markvissa leit að lausnum.
Hann vann með lækni, þjálfara og næringarfræðingi, las rannsóknir og prófaði fjölbreyttar næringarvörur til að skilja betur hvað veldur meltingarvandamálum við langvarandi áreynslu.
Árið 2010 fór hann að þróa sínar eigin blöndur. Áherslan var meðal annars á vönduð hráefni, góða meltingu, glútenlausar lausnir og að draga úr sykurneyslu á meðan á æfingum og keppni stendur.
Árangurinn lét ekki á sér standa.
226ers verður til

Sama ár varð 226ERS til í rúmlega 12 fermetra vinnuaðstöðu í kjallara heimilis hans – með aðeins þrjár vörur í upphafi.
Síðan þá hefur vörumerkið vaxið mikið, en grunnmarkmiðið er enn það sama:
Að þróa hágæða íþróttanæringu sem hjálpar fólki að næra líkamann, standa sig betur og ná markmiðum sínum.
226ERS leggur enn mikla áherslu á gæði hráefna, náttúrulegar lausnir og vörur sem líkaminn á auðvelt með að melta.